Íslenskt sumarveður
Til eru þeir sem halda að alltaf sé gott veður í útlöndum. Ég er ekki í þeirra hópi enda hef ég búið í útlöndum í fjögur ár og veit vel að svo er ekki. Hins vegar er stundum hlýrra í útlöndum en á Íslandi. Sérstaklega á sumrin. Í dag er hins vegar íslenskt sumarveður í Danmörku, rok og rigning. Það væri kannski allt í lagi ef að ég ætti ekki eftir að hjóla heim.
En mér skilst að þetta sé gott fyrir gróðurinn. Bara vonandi að það stytti upp fyrir Roskilde festival. Sýnist reyndar á veðurspánni að Nína muni koma með góða veðrið eins og fyrri daginn. Kannski ég taki mér frí frá lestri og skriftum á sunnudaginn og bjóði fjölskyldunni í Bon Bon land.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home