Laugardagur
Á laugardaginn kemur Nína, er að velta fyrir mér hvort ég að taka Þorbjörgu með að ná í hana. Hún verður auðvitað ansi þreytt en á móti kemur hvað það er gaman fyrir hana að fá að taka á móti stóru systur.
Um kvöldið ætla ég að fylgjast með kosningaúrslitum á Íslandi. Hlusta á útvarpið í gegnum tölvuna sem er nú reyndar orðin algjörg skrapatól. Það er ekki á hverjum degi sem við getum kosið okkur forseta og það forseta sem hefur farið gegn valdi Davíðs. Ég sem barðist á móti Ólafi ´96 gerði mér sérstaka ferð inn í Kaupmannahöfn til að kjósa hann. Fór í nýja sendiráðið sem við deilum með hinum gömlu nýlendunum. Hitti vel á því að það var þjóðhátíðardagur Grænlendinga og fullt af fólki í þjóðbúningum - eða ekki - fyrir utan húsið. Það var búið að slá upp tjaldi, hella upp á kaffi og svo voru kökur í boði. Það var líka hljómsveit en ég heyrði ekkert í henni. Lét mér bara duga að smakka á kökunum og óska fólki til hamingju með daginn. Það voru nefnilega 25 ár síðan Grænland fékk heimastjórn. Ég heilsaði nokkrum Grænlendingum á leiðinni á staðinn og óskaði þeim til hamingju með handabandi. Í hinni hendinni voru þeir með bjór og grænlenska fánanna. Einn vildi endilega að ég kyssti sig á kinnina en ég var ekki til í það. Svona er ég nú vond.

2 Comments:
Til hamingju með bloggið! Kannski ætti ég bara að halda í þann fítus að láta alla skrá sig á bloggið mitt, þá neyði ég alla vini mína til að fá sér blogg. :) Ég verð í alveg sömu stöðu og þú á laugardaginn, að kjósa Ólaf Ragnar í fyrsta sinn. Árið 1996 vann ég fyrir annan frambjóðanda og var ekki par hrifin af ÓRG. Ég skil þig líka vel með Grænlendingana, því ég er ekkert mikið fyrir að kyssa ókunnugt fólk.
Ég man ekki betur en að við höfum báðar unnið fyrir sama frambjóðenda. Spurning hvernig hefði farið ef Óli hefði ekki unnið. Ætli við værum að fara að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu þá?
Sendu inn athugasemd
<< Home